» 0 hafa sagt sína skoðun
Hefur þú:
(x) klesst bíl vinar/vinkonu ( ) stolið bíl ( ) verið sagt upp af kærasta/kærustu ( ) verið rekin/n (x) lent í slagsmálum (x) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum (x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki ( ) verið handtekin/n ( ) farið á blint stefnumót (x) logið að vini/vinkonu (x) skrópað í skólanum ( ) horft á einhvern deyja ( ) farið til Canada ( ) farið til Mexico (x) ferðast í flugvél (x) kveikt í þér viljandi ( ) borðað sushi ( ) farið á sjóskíði (x) farið á skíði (sem sagt í snjó) ( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu (x) farið á tónleika (x) tekið verkjalyf (x) elskar einhvern eða .þykir rosalega vænt um e-h akkurat núna(uss uss hehe) (x) legið á bakinu úti og horft á skýin (x) búið til snjóengil (x) haldið kaffiboð (x) flogið flugdreka (x) byggt sandkastala (x) hoppað í pollum (x) farið í "tískuleik" (dress up) (x) hoppað í laufblaðahrúgu (x) rennt þér á sleða (x) svindlað í leik (x) verið einmana (x) sofnað í vinnunni/skólanum ( ) notað falsað skilríki (x) horft á sólarlagið (x) fundið jarðskjálfta (x) sofið undir berum himni (x) verið kitluð/kitlaður (x) verið rænd/rændur (x) verið misskilin/n (x) klappað hreindýri/geit/kengúru (x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi (x) verið rekin/n eða vísað úr skóla (x) lent í bílslysi ( ) verið með spangir/góm (x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni ( ) borðað líter af ís á einu kvöldi (x) fengið deja vu (x) dansað í tunglskininu (x) fundist þú líta vel út (x) verið vitni að glæp (x) efast um að hjartað segði þér rétt til (x) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu) (x) leikið þér berfætt/ur í drullunni (x) verið týnd/ur (x) synt í sjónum (x) fundist þú vera að deyja (x) grátið þig í svefn (x) farið í löggu og bófa leik (x) litað nýlega með vaxlitum (x) sungið í karaókí (x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki (x) hringt símahrekk (x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér (x) stungið út tungunni til að ná snjókorni (x) dansað í rigningunni (x) skrifað bréf til jólasveinsins ( ) verið kysst/ur undir mistilteini (x) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um (x) blásið sápukúlur ( ) kveikt bál á ströndinni (x) komið óboðin/n í partý ( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í (x) farið á rúlluskauta/línuskauta (x) hefur einhver óska þinna ræst ( ) farið í fallhlífastökk ( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig (x) pissað úti
» 2 hafa sagt sína skoðun
1. Hver ert þú? 2. Erum við vinir? 3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig? 4. Ertu hrifin/nn af mér? 5. Langar þig að kyssa mig? 6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það. 7. Lýstu mér í einu orði. 8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst? 9. Lýst þér ennþá þannig á mig? 10. Hvað minnir þig á mig? 11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera? 12. Hversu vel þekkiru mig? 13. Hvenær sástu mig síðast? 14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það? 15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig
» 7 hafa sagt sína skoðun
Það komu inn 35 atkvæði.......... nokkuð gott það
» 1 hafa sagt sína skoðun
Það er búið að vera mikið að gera hjá mér undanfarið. Er búin að vera að reyna að dútla eitthvað í íbúðinni en fæ svo lítinn tíma því ég er í tveim vinnum, samkaup á daginn og Hótel Hamar á kvöldin og um helgar. En ég fór um daginn á geggjuðustu tónleika ever. SIGURRÓS í Laugardalshöll. Það er ekki hægt að tjá með orðum hve magnað þetta var. You had to be there!!. En annaðkvöld er svo stefnan tekin á Nasa á Trabant, Hjálmar og Mugison, held að það verði stuð..
Er að vinna núna, verð að sinna helv... gestunum
ble
Anna
Hvað er betra en að sitja á rassgatinu og gera ekki neitt?? Ég veit það ekki , og ef þið vitið það þá endilega látið mig vita
Ég fór á Mótel Venus í gær á Úlrik, sem voru gjörsamlega að brillera í performinu. Þó ég verð nú að segja að dúndur kom ekki eins oft fram og ég hafði vonað.
Mín, sem var edrú bæ þe vei, var boðin upp í dans af þessum gegt klikkaða íra, sem var stuð á sinn skrítna hátt, er soldið aum í handleggjunum.
Fer að styttast í það að ég fari að koma heim aftur, bara fjórir dagar , og er mér farið að hlakka soldið til. En ég fer aftur stelpur ef þið bjóðið mér ekki að vera með í þessum matarklúbb ykkar. Ok
En geðveikt djamm á morgun. Úlrik upp í Valfelli vúhú æði vei ómæ god (quote Halla & Orra)
Ble ble
» 4 hafa sagt sína skoðun
Jæja þá fer að líða á helgina og má maður búast við geggjuðu djammi. Maður verður víst að fara á Mótel Venus annaðkvöld og hlusta á Halla og Orra í Úlrik og svo verða þeir upp í Valfelli á laugardagskvöldið, allir að mæta Þarf reyndar á eftir að fara heim til Halla og skipta á rúmfötunum fyrir hann Hann segir að Damien aka Jón hafi migið í rúmmið hans og hann neitar að sofa í því þangað til ég er búin að skipta um.
Halli sorrý ég gleymdi að koma með mjólkina niður í gær
Jæja ég var víst klukkuð af henni Eddu minni, elskulegu Eddunni minni
1. Ég elska Subway
2. Ég er orðin einhleyp, og mér líður vel (eins og er)
3.Er komin með íbúð og er í rauninni í fyrsta skipti að standa á mínum eigin fótum, og mig hlakkar mjög til
4.Á frábæra vini, bestu vini sem hægt er að hugsa sér. Edda, Halli, Helena og Freysi mega sérstaklega taka þetta til sín, ég elska ykkur
5.Ég á kolsvartan kött með tvíbrotið skott sem heitir Damien Butowzki, aka Jón, aka Typpi. Elska´nn
Þetta er klukkið mitt, vonandi var það eitthvað fræðandi fyrir ykkur
Halli "klukk" Auður "klukk" Begga "klukk"
Gestur númer 1000 hjá mér fær vegleg
VeRðLaUn sem er frí ferð fyrir
tvo upp í Borgarnes og gisting á milli mín og Ingós........
Your positive traits: You tend to stick with relationships - through the good and the bad. You are a great listener and tend to give valuable advice. Cautious and careful, you never jump in recklessly... saving yourself from heartbreak. Your negative traits: Money is very important to you, so much so that it's a cause of arguments in relationships. If your lover isn't loyal or attentive enough to you, your eyes start to wander... You tend to keep things inside - so your partner may not know when or why you're upset. Your ideal partner: Is stable, serious, and ready to be committed to you. Is successful and able to provide you with the lifestyle you crave. A true romantic, who is willing to express their desire for your heart. Your dating style: Comfortable and traditional. You'd love to have a nice meal at a cozy restaurant. Your seduction style: Love comes first for you before you'd even think of intimacy. Traditional: you're not a cold fish - but you're not into kink either. Pleasing... you always make sure that your partner is having a good time. Tips for the future: Be willing to change your mind. Who you think is the love of your life may be very wrong for you. Try listening to your mate. While your stubborn streak is hard to break, sometimes your partner knows best. Ligthen up! The first months of a relationship should be about fun, not intentions. Best place to meet someone online: American Singles - peek in on how much potential dates make, and what they do for a living. Best color to attract mate: Pale blue Best day for a date: Friday Get your free love profile at Blogthings.
Já fólk svona er hún Bína ykkar og kannski er eitthvað til í þessu..........
Gleðilegan Valentínusardag í fyrradag Ég fékk enga rós en ég góóóóóðan koss namm
En helgin var góð hjá mér. Við fórum nokkrir krakkar og leigðum okkur sumarbústað með potti og alles, það var geggjað!!! Við lögðum af stað á föstudaginn og auðvitað var byrjað að drekka strax, en fyrst pínu vesen að tengja afruglarann til þess að geta horft á IDOL!!!! Á meðan á idolinu stóð var drukkið stíft og allir orðnir nokkuð ölvaðir þegar fyrri hlutinn var búinn. Ég var orðin svo skemmtilega full að ég og vinkona mín eyddum öllum seinni hluta Idolþáttarins inn á klósti á trúnó Hver datt út???
Eftir idolið og trúnóið var síðan skellt sér í pottinn. Tvö pör og svo einhleypingarnir.................Einhleypingarnir voru nú fljótir að láta sig hverfa geggt gaman
Laugardagurinn byrjaði með þvílíkri þynnku og hausverk!!!!!!! En maður var fljótur að redda því -íbúfen og bjór- Svo var byrjað að elda hátíðismatinn. Grillað lambalæri með kartöflugratíni a la Steini og sveppa/rauðvínssósu a la Steini. Mættu margir í mat, held að við höfum verið um tíu, og eftir matinn láum við hingað og þangað um bústaðinn að melta. Þetta var geggjað gott, Steini fær sko að elda í brúðkaupinu mínu!!! Steini greyið veiktist samt um kvöldið og þurfti að fara heim (fékk matareitrun) Svo var bara djammað framm á rauða nótt, þangað til að allir byrjuðu að tínast inn í herbergin einn af öðrum. Ég og Magga vorum úthaldssigurvegararnir þannig að við ákváðum að stríða honum Tóta soldið. Við tókum málningardótið mit og máluðum hann allan í framan meðan hann var sofandi(náðum bara að gera aðra hliðina) Oooohhhh hann var svo sætur þegar hann vaknaði
Hann var ekki sáttur!!!!!
Á sunnudaginn var svo bara gengið frá og skellt sér heim í bælið... ég og Edda fórum nú reyndar inn á Skaga á skygnilýsingarfund með honum Þórhalli miðli. Hann er helvíti fyndinn kall og hávær, en þetta var skemtileg reynsla
Arnar og Sammi frændi voru alveg rosalega góðir við mig og komu með þynnku subway handa mér sem var geggjað góður Verð ég þeim ævinlega þakklát
En nú er miðvikudagur og vinnuvikan hálfnuð og vinnuhelgi frammundan en segi ykkur allt frá því seinna
Sign in the guestbook and tell me how beautyful I am please
Ég sit hér inn í tölvustofu og á að vera að læra í sálfræði, gengur frekar brösulega Það er allt á kafi í snjó og brjálað veður en ég held að það sé verra fyrir vestan. Pabbi og mamma komu í heimsókn og gistu hjá okkur í tvo daga því það var ófært vestur en allavena Jón bróðir kom með og Ingólfur og vinir hans drógu hann á fyllerí splæstu og alles gegt stuð á þeim. Edda vinkona varð ástfangin af honum Hehehe mín fylgdist bara með og staupaði gin djö... viðbjóður verð ég að segja, en hvað gerir maður ekki fyrir vímuna? Maður drekkur meira að segja síaða kardimommudropa
Ég og Jónína erum samt að spá í að fara út að vinna í sumar. Mér líst geggjað á það. fara til Mallorca eða Benidorm og vinna á einhverju hóteli og djamma djamma djammma djammmmmmma!!!!! og vaða í karlpeningnum........ má ég kannski ekki segja þetta???? æi fuck it Ingó sér þetta hvort sem er ekki híhí. Jæja er að fara í tíma
"veriði hress, ekkert stress, bless" sagði einu sinni djarfur maður
Ps: Kvittiði fyrir komuna og segjiði hvað ég er sæt
Þetta er svona. Stelpur...(Strákar) eru svo graðar í bossann alltaf gaman að pota
Segið ykkar skoðun